🔒 Sýnishorn ← Svæðið Kennsluleiðbeiningar Sýnishorn úr verkefnum Lestrarpróf
Sérkennarasvæði

Kennsluleiðbeiningar

Hvernig vinna á með Lesum lipurt — einfaldar reglur, byggðar á reynslu, sem ganga í gegnum allt efnið.

Þumalputtareglur

Æfingin skapar meistarann

Aðeins það sem er þjálfað lærist. Bókin er ætluð öllum nemendum sem þurfa að bæta lestur sinn og notast samhliða öðrum lestrarbókum.

Kennarinn les alltaf fyrst

Kennari les textann eða orðalistann fyrst, svo nemandinn sama texta. Nemandinn heyrir réttan framburð og réttar áherslur — og sjálfstraustið eykst.

Grípa strax

Nauðsynlegt er að grípa nemandann um leið og hann er að þróa lestrarvanda, áður en hann missir áhugann.

90%-reglan

Nemandinn á að geta lesið 90% af texta fyrirhafnarlaust — annars er textinn of þungur miðað við getu.

Fingurinn fylgir línunni

Gott er að láta fingurinn fylgja línunni; þar sem fingurinn er, þar er fókus augnanna.

Stutt og oft

Kennari og nemandi leysa verkefnin saman um það bil tvisvar til þrisvar í viku, í 5–10 mínútur eftir úthaldi nemandans.

Hvernig vinnan fer fram

Kennari og nemandi vinna saman og hjálpast að. Kennarinn les alltaf fyrst textann eða orðalistann, síðan les nemandinn sama texta. Þá heyrir nemandinn hvernig textinn er rétt lesinn og lærir um leið réttan framburð og réttar áherslur. Sjálfstraust nemandans eykst.

Stundum fær nemandinn að velja sér verkefni sem honum finnast áhugaverð. Ef nemandinn sýnir áhuga á verkefni ber að nýta áhugann, lesa og útskýra verkefnið vel og hjálpa honum að finna réttar lausnir.

Gott er oft að spyrja nemandann hver sé munur á hinum ýmsu orðum á listunum — til dæmis hvað sé ólíkt með „borði“ og „barni“ eða „bursta“ og „bolta“. Þannig þjálfast bæði lestur og málskilningur.

Að vinna með orðalistana

Orðalistar eru undirstaða hvers kafla. Þeir byggja á orðum sem hefjast á eða innihalda ákveðinn samhljóða eða samhljóðasamband. Orðunum er raðað í fyrirfram ákveðna röð eftir fyrsta sérhljóða í orði, og sú röð er alltaf sú sama í öllum listunum. Röð sérhljóðanna spilar þannig saman að lesturinn verður brátt taktfastari, öruggari og auðveldari.

  • Lestur á orðalistum þjálfar lestrartækni — hljóðtengingar milli samhljóða og sérhljóða.
  • Lestur á orðalistum þjálfar augnhreyfingar, augndvalir og hreyfingu augna milli lína.
  • Orðalistar eru misþungir; listar merktir með stjörnu (*) eru þyngri og fyrir lengra komna.
  • Lesið orðalista helst þrisvar sinnum — fyrst hægt, svo skýrt og loks hratt.
  • Allir lesa lista númer 1; síðan velur kennarinn lista við hæfi hvers nemanda eða bekkjar.

Einnig getur verið gott að nota skeiðklukku — það hleypir kappi í nemendur. Oft þarf að ræða um orðin í listunum og útskýra merkingu þeirra.

Næsta skref